|
|
12.03.2008 20:08:48 / nabba
Bootcampið gengur bara vel...eða vel, þetta er ógeðslegt. Mikið hata ég bjarnagöngur, jumping jacks og hnefabeygjur. Ekki láta mig byrja á skærunum, mig líkar betur við hin skærin. Jæja hvað um það, ég vil segja frá seinustu vikum. Fyrir umþaðbil hálfum mánuði þá fór ég að fá undarlega bletti á hökunni, ég skildi ekkert í þessu, en fann alveg hrikalega til og ekki var til bóta að þetta var frekar ólekkert þarna á hökunni á mér. Þar sem ég er frekar lekkert manneskja þá líkaði mér þetta allskostar ekkert. Jæja ég beið róleg eftir að þetta færi sem það gerði eftir nokkurn tíma en uppfrá því kom í ljós smá sár á nefinu á mér. Betur sagt á milli nasanna, og ég man glögglega eftir að hafa hugsað: " fjúff, þetta verður lítið".Mikið vissi ég lítið, ég gerði mér engan veginn grein fyrir því að þetta óféti, sem ég kalla Lísu, ætti eftir að stækka og dafna. Innan skamms var þetta komið inn í nefið, kringum nasirnar og niður að vörum. Þetta er það hrikalegasta sem ég hef séð!!! Ég var með ógeðslegt Hitlesskegg á efrivörinni, það hjálpar ekki þegar maður reynir að vera kona. Jæja þetta hélt alltaf áfram að grassera og verða stærra, og alltaf fann ég meira og meira til.Á mánudaginn ákvað ég að skella mér til læknis, ég var horfin frá þeirri skoðun að þetta væri bara lítið sár. Þegar ég kom inn til læknisins eftir 2ja tíma bið, þá horfði hún á mig agndofa og spurði hvort hún mætti taka mynd, hún hafi aldrei séð svona grófa sýkingu í andliti á sínum langa læknisferli. Þar sem ég hef verið frekar viðkvæm fyrir þessum skríl var ég efins en konan bað mig svo fallega að ég lét eftir. Hér er myndin sem hún tók í vikunni, hún var svo ljúf að senda mér hana í e-maili:  Þarna er ég mætt á Heilsugæsluna í Austurbergi, til þess að fá krem við litla nefsárinu mínu. Læknirinn tók myndina af mér, tók andköf og sagðist ekkert geta gert annað en að segja mér að fara með faðirvorið, því líklegast ætti ég um 3 vikur eftir ólifaðar. Vonandi að kremið virki fljótlega... kv. Fjóla Dögg Blomsterberg Lísa Blomsterverg -minningin lifir í hjörtum okkar-
»
08.02.2008 18:46:00 / nabba
Jæja ég pantaði mér viðtal við Djöfulinn um daginn og var að fá svar til baka frá honum. Ég á að mæta á slaginu 17:00 á mánudaginn. Ekki er um hinn eiginlega djöful að ræða, heldur djöful í mannsmynd. Ég er að byrja í Bootcamp á mánudaginn. Einhvernveginn grunar mér að ég muni gráta og æla í þessum tímum, stundum bæði í einu. En ég verð nú bara að segja að ég á þetta skilið, nú fæ ég að gjalda allra áranna sem ég hef eytt í vitleysu (og uppskorið samkvæmt því . Útskriftin er á næsta leyti og ætla ég ekki að líta út eins og útblásinn blöðruselur í veislunni, banna myndir og segja mömmu að brenna þær. Nei ég ætla að bútkampa þetta af mér, og mæta í spinning með Ingu minni inná milli. Ég er samt svo ótrúlega viðurstyggilega stressuð fyrir þetta. Ég hef aldrei hitt Djöfulinn áður.
Ég er í vinnunni, mér finnst það leiðinlegt því að netið er alltaf að detta út vegna veðurs. Ég vil ekki einusinni tala um veðrið. Kvöldinu ætla ég að eyða hjá Nóa og Oddu og passa Snorra snúð. Það finnst mér gaman því hann er svo glænýr. Ég er meira að segja að spá í að gefa honum brjóst, bara svona til að prufa. Gá hvort það komi eitthvað, spennandi að sjá hvort það komi blóð eða sílíkon, jafnvel gott combó....Hvernig var þessi?
Ég var kynnt fyrir laginu Ef ég væri Guð með SSSól um daginn. Vil ég meina að það sé uppáhaldslagið mitt í augnablikinu. Það er á repeat í bínum, repeat hérna í vinnunni og á repeat í hausnum á mér þess á milli. Mikið elska ég það. Vildi bara deila þessu því ég hef ekkert að segja Hafið það gott um helgina og njótið veðursins með því að hanga undir sæng yfir sjónvarpinu. Það ætla ég allavega að gera eftir skírnina. Já ég er by the way ennþá að vona að Nói og Odda komi mér á óvart og breyti nafninu á litla í Fjólmundur Snorri (kallaður Snorri). Ég reikna með að vonbrigðin verði mikil á morgun í þeim efnum.... kv. Bóla Blomsterberg
»
14.01.2008 22:38:01 / nabba
Jæja nú er nýtt ár gengið í garð og 90% kvenþjóðarinnar hefur strengt megrunar áramótaheit. Nú hefur áhugi minn á einni mjög byltingarkenndri aðferð vaknað. Þessi aðferð hefur margsinnis verið rædd til hlýtar af undirritaðri og einu skyldmenni mínu, frk. Maríu Ósk Gunnsteinsdóttur, hjúkrunarnema við HÍ og verðandi doktor. Þessi aðferð virkar vel og hefur ekkert með aukna hreyfingu, breyttan lífstíl, strangt mataræði og vatnslosandi töflur að gera. Samt sem áður getur mikill árangur komið fram eftir aðeins 2-3 mánuði. Þessi byltingakennda megrunaraðferð kallast "The tapeworm affect" eða "bandormaáhrifin" og er mjög auðveld í framkvæmd. Það eina sem þarf að gera að að komast í sýkt kjöt, annað hvort nauta eða lamba, skiptir ekki máli hvort. Þegar kjötið hefur verið fundið þarf að neyta bita af sýkta kjötinu, sem er að sjálfsögðu hrátt og tryggja þarf að eitt eða tvo egg séu í þessum eina munnbita. Eftir þessa máltíð getur viðkomandi slakað bara á og látið náttúruna hafa sinn gang. Þessi egg munu klekjast út í meltingarfærunum og þar mun bandormur koma sér vel fyrir. Þegar hann er fæddur, getur þessi heppni aðili borðað það sem hann lystir. Hamborgara, súkkulaði,kók eða bara flest sem hugurinn girnist. Þessi ormur virkar nefnilega þannig að hann borðar allar kalóríur sem líkaminn inntekur(hafið engar áhyggjur, ormurinn lengist bara en verður ekki þykkur. Þið munið ekki enda með snák görnunum). Áhrifin eru þau að manneskjan hríðgrennist á stuttum tíma en aukaáhrifin eru smávægileg miðað við að draumar séu að rætast. Aukaáhrif getur verið ógleði, vannæring og þreyta m.a. en hægt er að neyta mikils koffíns til þess að vega upp á móti þreytunni. Þegar sá árangur sem óskað hafði verið eftir er fullnægður, þarf ekkert annað en litla aðgerð hjá lækni til þess að fjarlægja þennan litla heimilisvin sem hefur hjálpað til við að finna nýja lífshamingju. Nú set ég fram tossalista yfir það sem þarf í þessu nýju megrun og enda svo á hjálpar og upplýsingamyndbandi fyrir þá sem eru efins. Árið 2009 mun svo bók koma út með ýtarlegri upplýsingum og útskýrinum um þessu nútíma megrunaraðferð fyrir uppteknar konur sem hafa ekki tíma til þess að vikta matinn sinn og eyða 2 klukkustundum á dag í ræktinni. Gangi ykkur vel Tossalisti:
Sýkt kjöt (aðeins 1-2 munnbitar. Hægt að neyta með sósu og karftöflum til þess að auðvelda inntökuna. Hægt er að hafa samband við sláturhús landsins og fengið að kíkja á sýkta dýrið eða taka einn laugardag og fara í bíltúr útá land og leita í skurðum. Von um virkni eggjanna. Þegar árangur er orðinn fullnægjandi þarf að panta tíma hjá lækni. Auðveld aðgerð verður framkvæmd og líf þitt fullkomnað. Auðveldara hefur þetta aldrei verið og mikilvægt er að halda árangrinum með bættum lífstíl, eða endurtaka megrunina aftur þegar þyngdin er komin í fyrra horf. Gott er að kíkja á þetta myndband fyrir frekari upplýsingar:
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=&id=3660 með von um góðann árangur og lukku. Dr. Blomsterberg
»
07.01.2008 21:06:07 / nabba
Djöfull elska ég þegar enginn kommentar!!! Kem með eitthvað bráðskemmtilegt innan tiðar
»
29.12.2007 16:41:32 / nabba
Dauðasyndirnar eru sjö. 1.Losti. 2.Óhóf. 3.Græðgi. 4.Leti. 5.Reiði. 6.Öfund. 7.Stolt Ég get tekið 2,3,4 og 7 á mig og þá get ég með sönnu sagt að ég eigi ekki von á góðu á næstunni....þetta er það sem jólafríið hefur kostað mig, fjórar dauðasakfellingar!
kv. F.D.Blomsterberje
»
22.10.2007 15:17:37 / nabba
Jæja nú er vetrarfríið búið, því miður og verr og aðeins mánuður og hálfur í jólafrí. Á fyrsta degi frísins, var ég plötuð í body kombat svckallaðan. Þegar ég tók játandi því boði, bjóst ég ekki við að ég væri að undirrita minn eigin dauðadóm. Þegar ég mætti spræk á svæðið, og tilbúin að kýla aðeins í loftið fékk ég þær fréttir að konan sem kennir vanalega væri forfölluð og því kæmi önnur í staðinn. María, sjálfskipaður böðull minn, sagði mér að kona að nafni Nazikombatbitch væri mætt til þess að enda líf mitt. Enn vissi ég ekki við hverju ég ætti að búast svo ég tók öllu með ró. Meðan konan kom sér fyrir á sérsmíðaða pallinum sínum spurði hún hvort einhver væri að koma í fyrsta skipti, en þar sem ég var á spjallinu við svokallaða frænku mína heyrði ég það ekki. Það garenteraði dauða minn. Það þarf ekki að segja frá því, en þessi tími var hrikalegur. Ég var gangsett þrisvar sinnum með hjartahnoði og raftækjum. Þegar ég var rétt að jafna mig eftir hjartastopp númer eitt, hélt hún áfram að berja mig áfram með 7000 armbeygjum og sprettum. Þetta álag olli öðru stoppi og enn var mér ýtt í "apastökk" og sipp. Eftir þriðja hjartaáfallið labbaði ég út. Hreyfing er yfirleitt af hinu góða, en ég er ekki tilbúin til að láta líf mitt fyrir þetta. Ég hugsaði mér ýmsar leiðir til þess að pynta kvalningarkonu mína sem leiddi mig inn á veg dauðans til bana... en í stað þess kúkaði ég í klósettið hennar..og sturtaði niður.  Líkt og þessum manni var ég hnoðuð aftur til lífsins.Þrisvar
»
24.09.2007 15:43:46 / nabba
Ég hef verið að velta fyrir mér hver í fjandanum hefur númer sem minnir á mitt. Undanfarnar tvær vikur hef ég verið að fá undarleg símtöl og skilaboð. Það eru alltaf einhverjir ókunnugir mér að hringja á óguðlegum jafnt sem guðlegum tímum, svo hef ég fengið skilaboð eins og:
"Erum að leggja af stað frá sandgerði" " Fer að koma mér" og " ég vil sjá inní þig"
Ég get sko lofað ykkur að það vill enginn sjá inn í mig. Þetta hefur ollið mér miklum heilabrotum. Þetta er hið undarlegasta mál og líklega mun ég aldrei komast að því til hvers þessi skilaboð eiga að berast.
Annað sem ég hef dundað mér við þegar ég er ekki að googla einhvern, eru mannanöfn. Hvað get ég skírt frænda min tilvonandi? Það eru nokkur sem koma til greina: Gjúki,Grankell, Guðröður,Gyrðir, Hagbarður, Hyltir, Hænir, Koðrán, Líni, Loðmundur,Lýtingur, Ráðvarður, Ráðvarður, Sigfastur,Sigurnýjas, Skefill, Smiður, Skeggi og Skíði, Ubbi, Vallaður, Úddi, Ylur, Yrkill og Garðar! og ég get talið áfram!
þetta er valið: Geirmundur Fjólar (til heiðurs ballkóngsins Valtýrssonar) Hlégestur Fjólar (bara til að eyðileggja líf hans) Hrolleifur Fjólar ( í sama tilgangi og ofangreint) Jón Fjólar (Jón fyrir afa Begga, Fjólar af augljósum ástæðum) Fjólmundur Jóel (einnig augljóst) eða það sem skarar framúr, einfaldlega: Fjólar Blomsterberg Ég er sveitt undir brjóstunum. Það er ekkert endilega afþví að ég er með svo hrikalega stór brjóst, heldur af því að bumban klessist við brjóstin þegar ég sit og hefur myndast mikill núningshiti þar. Ég get geymt pennaveskið mitt þarna á milli eða hitað burritosið mitt. Einmitt vegna þessarar staðreyndar, þá er ég að fara í spinning.. Núna.
Kveðja F.D.Blomsterberg
»
14.09.2007 21:44:13 / nabba
Hver í fjandanum er ábyrgur fyrir dagskrá kvöldsins á RÚV? Sá hinn sami má fara að huga að nýjum starfsvettvangi. Að bjóða fólki uppá Dr.T and the women klukkan níu á föstudagskvöldi er til háborinnar skammar! Svoleiðis dagskrá neyðir fólk eins og mig í lærdóminn. Það er búið að sýna þessa mynd svona 2svar á Stöð 2, 700.000 sinnum á Bíórásinni og 4 sinnum á RÚV. Þetta er alveg komið gott. Yfirleitt er dagskrá Ríkissjónvarpsins ekki svona mikið hitamál í mínum huga, en núna er ég föst í sófanum. Ekki af eigin vilja heldur af nauðsyn. Ég er með svo miklar harðsperrur að það er farin að læðast að mér illur grunur að ég sé með annan fótinn í gröfinni og hinn á bananahýði. Það eina góða við þetta er að ég næ ekki í ísskápinn. Ég get ekki sitið, staðið, labbað, beygt mig og hvað þá ferðast upp og niður stiga. Ég er fangi í eigin líkama. Og þegar fólk líður þessar þrautir á föstudagskvöldum, þá á það ekki að þurfa að sitja uppi með Dr. Té og Konurnar!! Þetta er brútal. Á skjá einum er ekkert mikið betra.
Ég er að passa drengina mína. Las fyrir þá Trúfasta vini, um Jóas konung. Fékk að gilla og klóra þá til svefns. Búin að vinna Bubbles með 980.920 stigum og til að toppa þetta allt saman þá var BACKPACKERS að byrja núna og eftirfari stórmyndarinnar á rúv er Wallender-fyrir frostið. Þetta er hálf kómískt, svo sjúkt er það. Héðan í frá skrifa ég rúv með litlum stöfum til þess að undirstrika fyrirlitningu mína!
Þetta er bara týpískt föstudagskvöld fyrir týpíska nýtvítuga konu í rjóma lífsins.
Yours truly
F.D.Blomsterberg
»
12.09.2007 16:48:13 / nabba
Ef ég á að segja ykkur satt, þá sit ég á klósettinu með tölvuna á lærunum. Það eina sem skilur þetta tvennt að er skærbleikt handklæði sem hefur verið hér á ofninum mér til halds og traust um nokkurn tíma. Ég sit hér og hugsa minn gang, á meðan ég bíð eftir líkama mínum að skila dagsverki sínu. Það gengur ekki eins vel og ég hafði vonast eftir. En eins og sagt er, þeir fiska sem róa, svo ég bíð hérna þolinmóð eftir verki dagsins. Miðað við inntöku dagsins, þá reikna ég með um 350 gramma gangi úrsins. Klukkan er fjörtíumínutur gengin í fimm og er tími til að hringja í minn persónulega næringarfræðing, því einhversstaðar heyrði ég að ég ætti að hjóla án áfangastaðar eins hratt og ég gæti í rúman klukkutíma. Ég er búin að lifa á fæði sem útilokar gos, sykur, óvelkomin kolvetni og aukaorku í nokkurn tíma og verð ég að segja það það hefur haft nokkur áhrif á skap mitt. Ég hef tekið eftir því stundum þegar ég horfi á sjónvarpið, þá fer ég að hugsa um nammiskálina sem ég veit að er undir borði upp í stofu. Brátt er ég farin að ímynda mér hvað sé í boði þar og skömmu eftir það missi ég þráðinn á sjónvarpsefninu. Eftir það hverfur hlóðið, og heyri ég smá ýl. Skömmu eftir það fer ég að finna ímyndað bragð af súkkulaðinu og finn lyktina af rómabúinni Lindor kúlu. Þegar þetta gerist veit ég að það er ekki langt í tap við Níels sem er djöfullinn á öxlinni. Þá er lítið annað að gera en að skella sér í göngutúr um íbúðina og finna mér eitthvað að gera. Yfirleitt hefur bað orðið fyrir valinu. Þegar þessi tilfinning er að vella upp á yfirborðið get ég orðið ansi leiðinleg í skapi og á það til fiska eftir allskonar leiðindum, ef ekki við sjálfa mig þá við aðra. En þolinmæðin þrautir vinnur flestar frétti ég og því mun ég líta glaðan dag, þann dag sem vigtin verður besta vinkona mín og sýnir mér að 45 smörlíki séu farin af mér. Þá verð ég enn kynþokkafyllri en ég er í dag. En hvað um það, ég var að fá mér hindberja, jarðarberja, bláberja skyrdrykk og horfa á Neyðarfóstrurnar. Sá þáttur virðist vera til þess eins að sýna fólki að það sé yfirleitt mjög leiðinlegt að eiga börn, og hefur mjög letjandi áhrif á sálarlíf fólks í þeim efnum. Allavega frystust stokkarnir í mér þeirri svipan sem ég heyrði og sá barnið stífna upp af frekju og öskri.
Nánasta framtíð er björt, ætli mjöðurinn verði ekki tekinn upp eftir sumarið á laugardagskvöldið.
»
24.07.2007 23:06:19 / nabba
Ok eitt áður en ég fer úr vinnunni... ekki bara það að Jesus
Crist Superstar sé besti söngleikur sem gerður hefur verið ásamt
Rocky Horror, tónlistarlega séð.... heldur er Jesús bara einn
heitasti maður sem ég hef á ævi minni séð í sjónvarpi!!!!
Ég veit ekki hvort að það sé rétt að segja þetta, en ég bara
verð. Jesús er heitur, jafn heitur og rjúkandi lummur. Enda selst
söngleikurinn eins og heitar lummur. Ég er handviss um að þegar
þessi söngleikur var gerður árið 1973 (sem gerir Jesús um 63 ára í
dag) þá hafi kvenfólkið streymt inn í verslanir og keypt eintak í
bílförmum til þess að "bæta í dagdraumabankann". Því þessi maður
verður að segjast töluvert heitari en tíðkast í dag. Og þessi
sloppur og síða hárið er sko ekkert að skemma fyrir manninum! Ég
verð að segja að ef Jesú var eitthvað í líkingu við þetta... þá var
ekkert svo slæmt að vera María Magdalena... nema kannski þarna í
endann.
hér eru tvö lög sem ég legg til sönnunnar á staðhæfingu
minni og legg málið í dóm:
http://youtube.com/watch?v=jkje4FiH9Qc
http://youtube.com/watch?v=rDHoTOgeNWE&mode=related&search=
kv. Bóla
»
11.07.2007 17:09:09 / nabba
Jæja ég frétti að það væri kominn tími á færslu. Sumarið er búið
að vera æði, við Lena og Emma erum eins og englarnir hans Kalla
hérna í SS. Berjumst hetjulega við fólkið sem situr á peningunum og
neitar að borga. Þeir fá dass af ákveðni, teskeið af hótunum og
einn bolla af ítrekunum í deigið sitt.
Þetta er búið að vera skemmtilegt sumar hingað til, og útlitið er
bjart! Mæjorka er að nálgast, eftir aðeins 25 daga! Sweet sól og
sumar, ég ætla að láta fagurleggjaða spánverja/þýskverja spila
fyrir mig á mandólín meðan ég sóla mig og gantast við félaga mína í
Ferðafélaginu Trúð.
Ég er farin að hlakkar verulega til!
Þetta sumar er búið að einkennast af vinnu, upplyftingu, vinum,
grilli og kósýheitum já og Family Guy.
Um helgina er innflutningspartý hjá Nóa, það verður gaman, eftir
föstudaginn verður svo farið í smá pásu frá skemmtunum. Þar til
Mallorca. Það er bara svo gaman á sumrin, þá nennir maður þessum
skemmtunum. Veðrið geðveikt og maður hefur efni á því. Veturnar,
vorin og haustin eru mun rólegri.
Jæja þá ætla ég að skella mér í ræktina og kannski læra smá ensku í
leiðinni.
Komið verið með! : http://youtube.com/watch?v=BmbsSw81Uww
http://youtube.com/watch?v=BrjcMJdEZIQ&mode=related&search=
Svo er maður farin að dreyma um strendur, verslanir, hótel, sól
og blíðu

Stelpurnar að fá hjálp við að bera mig í sjóinn til að ég geti
aðeins bleytt mig í sjónum.
kv. Hrefna
»
17.05.2007 23:41:28 / nabba

Þetta er hún Eydís Arna, og mér finnst voða skrítið að hún sé
ekki dóttir mín. Þegar ég sé hana hjá mömmu er eins og ég sé bæði
að kíkja í framtíðina og fortíðina, því þessi stúlka er svo sláandi
lík mér að það er hlægilegt. Sérstaklega samt þegar ég var lítil.
Ef Guð er mér góður þá verður barnið mitt svona eins og hún. Ég er
samt alltaf að hálf vona að þessi reynist vera dóttir mín. Hún er
það allavega í ímyndunarheimi mínum.
»
13.04.2007 20:34:19 / nabba
Einu sinni sagði vitur kona við mig:
"Það er seint of seint um rassinn gripið þegar kúkurinn er
kominn í brókina"
þessi sama kona sagði við mig:
"Það er of seint um píkuna gripið þegar barnið er komið í
magann"
Annar maður sagði eitt sinn:
"Nei, maður stingur ekki vini sína í magann, maður
stingur þá í bakið!"
Þessi vitra kona var mamma mín, sem hefur lengi þótt mikill og
djúpur viskubrunnur. Hinn manninn þekki ég ekki.
KV. No nacho libre no more
»
16.03.2007 15:27:54 / nabba

Af tilefni helgarinnar ákvað ég að taka mynd af herberginu minu
eins og það er var áður en ég tók til hendinni og ákvað að rýma
aðeins til. ég er bara hálfnuð en ég stefni á þetta útlit

þegar helmingurinn af draslinu var komið út fyrir framan
ruslatunnuna, og ég að skúra, varð mér litið útum gluggann og verð
ég að segja að mér krossbrá alveg og stalst til að taka mynd
af þessu undri. Ég hef sjaldan séð annað eins, jú kannski í
fréttunum en aldrei fyrir utan gluggann hjá mér!

jæja ég er farin að fylgjast meira með þessu undarlega fólki og
klára herbergið
bestu kveðjur
Argintæta
»
21.02.2007 09:20:04 / nabba
Jæja tölvan heima er ansi biluð, þannig að ég skrifa héðan úr
Verslunarskóla Íslands.
Helgin var ansi áhugaverð. Á laugardaginn fór ég í bíó með henni
Lenu minni. Fórum á The Notes on a scandal, hún var mjög góð, og
það er skrýtið að viðurkenna að Bill Nighy er ógeðslega þokkafullur
í henni. Ég geri mér smá grein fyrir því að hann er 58 ára, og gæti
verið afi minn. En það breytir ekki skoðun minni. Díi hvað hann er
flottur.
Eftir bíóið fórum við í smá bíltúr og þá sá ég í baksýnisspeglinum
þvílíkan árekstur beint fyrir aftan mig.
Toyota fór á steinvegg og kastaðist af honum og á gangstétt.
Stelpan sem var farþegi var meðvitundarlaus og bæði hún og
bílstjórinn voru greinilega drukkinn. Við stöllurnar fengum ansi
mikið sjokk og grétum við saman í fangi hvor annarar í hálfa aðra
klukkustund. Djók. Svo kom ég heim, og þá fann ég á mér að eitthvað
væri ekki í lagi. Strákarnir mínir, Bjarki og Fannar voru heldur
lúpulegir.
Þá spyr Afi þá hvort þeir þyrftu ekki að segja mér eitthvað, en
þeir muuundu bara eeekkert hvað hann var að tala um, bara aaaalls
ekki.
Þá varð Afi að sýna mér hvað gerðist. Þá fengu brennuvargarnir
mínir að horfa á video í mínu herbergi og ákváðu að troða fötunum
mínum ofan í stóra Línulampann minn.
Að sjálfsögðu fór eldurinn að láta á sér kræla en þeir héldu þá að
Amma væri að grilla sykurpúða, jeeeeeiiiii amma er að grilla
sykurpúða!!!!
Nei svo kemur Afi niður er þá reykmökkur inni hjá mér, og farið var
strax með logandi buxurnar út, og þær svoleiðis handónýtar.
hahahahahha greyin, þeir eru svo miklir vargar.
En Fjóla, við vitum ekki muninn á réttu og röngu!! Við vissum ekki
að þetta mætti ekki!!
Jæja svo eftir 11 og ég farin að slaka á, þá var hringt í mig
og spurt mig kurteisislega afhverju í fjandanum ég væri ekki í
afmæli. Þá var Hanna að halda uppá afmælið sitt, en boðið ekki
borist til mín.
Þá var brunað niðrí bæ, og um leið og ég steig inná staðinn, þá
áttaði ég mig á því að ég hefði kannski ekki átt að koma á bíl.
Fjandinn, jæja ég var eina stelpan á svæðinu sem var edrú.
Svo um 3 leytið, þá ákvað ég að drífa mig bara heim, því að
síminn var batteríislaus og ég áleit að mamma væri búin að hringja
svona 1400 sinnum. Neinei svo þegar ég kom heim, þá var ég ein
heima. Frábært, ég fór fyrr heim fyrir mömmu, en mamma hafði skellt
sér á djammið. Eins og ég hefði átt að gera.
Jæja þá var lítið annað hægt að gera en að fá sér kúkate.
Sunnudagurinn fór í að bíða, en lítið kom, taka tvö á
föstudaginn.
Fór reyndar í bíltúr með Margréti og Örvar bróðir hennar, sendi
hana með bleyju og blautþurrku til mín. Sem kom að góðum notum.
Jæja ég er farin, ég er eitthvað slöpp.
Bóla
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 9 Alls: 60575
|